Mótavaktin
HugmyndViðburðir
Heldur utan um sjoppuvaktir, gistivaktir, akstur og önnur foreldrahlutverk í kringum mót og viðburði barna.
Vandinn
Foreldravaktir í kringum mót enda oft í Google Sheets, Messenger þræði og óskýrum skilaboðum. Einhver á að taka sjoppuvakt, annar gistivakt, einhver þarf að keyra eða mæta í uppsetningu, en það er erfitt að sjá hver er búinn að skrá sig og hvað vantar enn.
Möguleg lausn
Einfalt vaktayfirlit fyrir foreldrahópinn þar sem hægt er að skrá sig á verkefni, sjá hvaða vaktir eru lausar og fá skýra mynd af því hver gerir hvað. Minna sheets-rugl, færri týnd skilaboð og betri yfirsýn fyrir alla.
Þykir þér þetta mikilvægt?
Láta vita þegar eitthvað breytist