Út að leika
HugmyndBörn
Sendu leikboð á barnið, ekki á rétta foreldrið. Kerfið finnur hver er með barnið hverju sinni.
Vandinn
Þegar barn vill hitta vin sinn þarf foreldri oft að vita hvort það á að senda á mömmu, pabba, bæði eða einhvern annan. Þetta er sérstaklega snúið þegar foreldrar eru fráskildir, barnið er á flakki milli heimila eða frænka, afi eða amma er stundum með barnið.
Möguleg lausn
Einfalt tól þar sem barnið er í miðjunni. Bakvið prófíl barnsins geta verið mamma, pabbi, frænka eða annar umönnunaraðili, og tilkynningar fara til þeirra sem eru með barnið þá stundina. Fullorðnir geta líka tengt prófíla eða samfélagsmiðla, svo aðrir foreldrar fái betri tilfinningu fyrir hver er hinum megin.
Þykir þér þetta mikilvægt?
Láta vita þegar eitthvað breytist