Þriðja vaktin
HugmyndHeimili
Lausn í mótun fyrir verkefni og ábyrgð sem safnast upp utan hins sýnilega skipulags.
Vandinn
Á mörgum heimilum er fullt af ósýnilegri vinnu sem lendir oft á sama fólkinu. Að muna eftir afmælum, bóka tíma, fylla á það sem vantar, fylgjast með skilaboðum, redda litlu hlutunum og halda utan um allt sem enginn sér fyrr en það klikkar.
Möguleg lausn
Teskeið sem hjálpar heimilinu að gera þessa ósýnilegu ábyrgð sýnilegri. Ekki til að búa til meiri stjórn, heldur til að dreifa álaginu betur og sjá hvað er raunverulega í gangi.
Þykir þér þetta mikilvægt?
Láta vita þegar eitthvað breytist